Ađalsíđa Félagiđ Fréttir Fundir Námskeiđ Greinar Myndir Tenglar
Búddasiđur
Gyđingdómur
Hindúasiđur
Islam
Kristindómur
Önnur trúarbrögđ
Siđfrćđi
Samţćtt verkefni

Fréttir

15.06.2010

Um leið og við óskum félagsmönnum og velunnurum félagsins gleðilegs sumars viljum við minna á ráðstefnu á vegum Eftre sem fer fram í Belgíu dagana 25.-28 ágúst 2010. Yfirskrift ráðstefnunnar er:

Challenging Religious Education
 
Poverty and Social Inclusion as European Issues

Sjá nánar: http://www.eftre.net/

Stjórnin


Meira
05.05.2010

Mannfræðifélag Íslands stendur fyrir pallborði undir yfirskriftinni:

"Þátttaka fræðanna í uppbyggingu"

í Árbæjarsafni, Kornhúsinu, laugardaginn 8. maí 2010 kl. 14-17. 

Málþingið er hugsað sem stefnumót ólíkra fræðigreina og verður fjallað um þátttöku þeirra og framlag til uppbyggingarinnar sem á sér stað í samfélaginu. Mun þetta vera lokapunkturinn á fyrirlestrarröð Mannfræðifélags Íslands, sem bar yfirskriftina "Breytingar - uppbygging - þátttaka".

Framsöguerindi: 

Dr. Kristín Loftsdóttir, prófessor við félags- og mannvísindadeild HÍ. Samtíminn í útrás, hruni og kreppu: Gagnrýnin sýn mannfræðinnar.

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ. Hver er maðurinn? Guðfræði – mannskilningur og uppbygging.

Dr. Gyða Margrét Pétursdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ. Frábært útsýni af jaðrinum.

Dr. Geir Gunnlaugsson, landlæknir. Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja.

Eftir framsöguerindin verða umræður um það hvort fræðin eigi að taka þátt í uppbyggingu og þá hvernig.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.


Meira
02.05.2010

Fyrirhuguð ráðstefna Ahmadiyya múslima á Íslandi, sem halda átti 5. maí n.k. í Norræna húsinu um stofnendur trúarbragða  hefur verið frestað. Ástæðan er röskun á flugi til og frá landsins.

 


Meira
 
Ţökk sé ţeim, sem opnuđu augu mín, eyru og hjarta.

Skráning í félagiđ

Hafđu samband

© 2007 FÉKKST     |     Vefhonnun Design EuropA