Mannfræðifélag Íslands stendur fyrir pallborði undir yfirskriftinni:
"Þátttaka fræðanna í uppbyggingu"
í Árbæjarsafni, Kornhúsinu, laugardaginn 8. maí 2010 kl. 14-17. Málþingið er hugsað sem stefnumót ólíkra fræðigreina og verður fjallað um þátttöku þeirra og framlag til uppbyggingarinnar sem á sér stað í samfélaginu. Mun þetta vera lokapunkturinn á fyrirlestrarröð Mannfræðifélags Íslands, sem bar yfirskriftina "Breytingar - uppbygging - þátttaka".
Framsöguerindi:
Dr. Kristín Loftsdóttir, prófessor við félags- og mannvísindadeild HÍ. Samtíminn í útrás, hruni og kreppu: Gagnrýnin sýn mannfræðinnar.
Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent við guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ. Hver er maðurinn? Guðfræði – mannskilningur og uppbygging.
Dr. Gyða Margrét Pétursdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ. Frábært útsýni af jaðrinum.
Dr. Geir Gunnlaugsson, landlæknir. Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja.
Eftir framsöguerindin verða umræður um það hvort fræðin eigi að taka þátt í uppbyggingu og þá hvernig.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Meira